top of page

Stærðir US 0-34
Afgreiðslutími: 2-6 mánuðir

Mori Lee merkið inniheldur sex línur sem eru gríðarlega fjölbreyttar og fallegar. Verðin eru mjög fjölbreytt eða allt frá 40.000-500.000 kr. Allt frá léttum slóðalausum kjólum í alls konar litum yfir í hádramatíska prinsessu kjóla. Merkið var stofnað árið 1953 sem fjölskyldufyrirtæki og hefur þróast út í heimsþekkt merki með birgja um allan heim. Við höfum unnið með þeim í áratugi og glatt ótal margar brúðir með fallegri Mori Lee hönnun. Það sem einkennir Mori Lee er einstakur fjölbreytileiki, smáatriði og glamúr. Skoðaðu úrvalið okkar hér að neðan en hafðu í huga að stundum seljast sýnis kjólarnir okkar. Þess vegna er gott að koma sem allra fyrst ef að þú sérð kjól í þínum stíl sem heillar.

We don’t have any products to show here right now.

Sérpöntun

Við getum einnig sérpantað ýmsa fallega kjóla frá þessu merki. Við sérpöntun mælum við með því að bóka tíma í mátun til þess að máta sambærilegt snið, efni, lit og stíl og þannig fá betri hugmynd á drauma kjólnum. Við hjálpum til með stærðarvalið og sjáum um allt pöntunarferlið. Að biðinni lokinni afhendum við fallega kjólinn með skemmtilegri mátun. Getum þó einnig hjálpað með sérpantanir án mátunar ef að það hentar betur.

bottom of page